Prógesterón - fyrir hverjar?
- Jul 13
- 5 min read
Updated: Jul 16

Þegar kemur að hormónauppbótarmeðferð hefur í gegnum árin aðeins verið horft á prógesterón sem “illnauðsynlegt” á móti estrógeni til að vernda legslímuna.
Málið er að þegar við tökum inn estrógen (hvort sem það er pilla, plástur, sprey eða gel) þá þurfa allar konur með leg að nota prógesterón á móti, ef það er ekki gert getur legslíman byggst upp, þykknað og þróast út í krabbamein með tímanum.
Estrógen og prógesterón eru svona eins og yin og yang, estrógen er vöxtur og gróska meðan prógesterón róar og sefar.
Það eru til mismunandi leiðir í hormónameðferð, algengast var að nota samsetta meðferð í pilluformi sem inniheldur bæði hormónin í einni töflu, en nú orðið er vitað að hormónameðferð sem tekin er í pilluformi er ekki alltaf besta og árangursríkasta leiðin þar sem þessari leið fylgir aukin áhætta á blóðtappa og er hún því ekki heppileg fyrir allar konur. Þar sem þessar pillur innihalda tilbúin (gervi) hormón geta þær valdið meiri aukaverkunum, það getur verið erfitt að stilla skammtana því oft þurfa konur hærri skammt af estrógeni sem er erfitt að gera með samsettri pillu, þess vegna er heildar virknin er ekki alltaf góð til að slá á einkenni.
Því miður eru ekki allir læknar sem gera greinarmun á prógesteróni og tilbúnu progestin, sem er raunverulega heitið yfir tilbúið - gervi - prógesterón.
Lengi vel var í notkun progestin sem heitir Medroxyprogesterone acetate (MPA), sem er t.d í getnaðarvarnar sprautinni Depo-Provera, en það er vel þekkt að þetta er eitt “óhollasta” gervi prógesterónið og því er notkun þess erlendis víða hætt eða allavega hjá þeim sem þekkja til og hafa uppfært þekkingu sína á gervi hormónum og er als ekki mælt með þessu sem hormónauppbót á breytingaskeiði - sem ég held að sé sem betur fer ekki gert hér á landi.

En ég held að þarna komi skýringin á því að læknar horfa bara á prógesterón sem legslímuvernd, í fyrsta lagi er það þessi misskilningur á muninum á “gervi” og “alvöru” prógesteróni og eru þar af leiðandi íhaldssamir þegar kemur að því að skrifa uppá prógesterón og hafa ekki uppfært þekkinguna sína á þeim fjölmörgu hlutverkum sem prógesterón gegnir í líkamanum annað en í kringum óléttu og að vernda legslímuna, sérstaklega eftir að að við dettum inná breytingaskeiðið.
Og í öðru lagi þá er það faktíst séð rétt að þú “þarft ekki” prógesterón í þessari stöðu (ekkert leg/með lykkju) og líklega eru margir læknar með í huga að ávísa ekki óþarfa lyfjum og sumar konur funkera bara vel án þess, en þegar konur eru að biðja um aðstoð vegna svefnleysis eða kvíða og andlegrar vanlíðunar þá ætti klárlega micronised prógesterón að vera fyrsta stopp!!
Nú orðið er mælt með að byrja frekar á því að nota plástur, gel eða sprey til að gefa estrógen og taka svo micronised prógesterón í belgjum á móti. Þessi hormón eru það sem er kallað body/bio identical sem þýðir að efnasamsetningin er sú sama og það sem við framleiðum í líkamanum. Meðan tilbúnu gervi hormónin hafa allt aðra efnasamsetningu.
Mæli með þessari grein til að skilja muninn betur - Pillur, plástur, gel eða sprey?

Ef við hugsum bara um að vernda legslímuna þá er líka hægt að nota hormónalykkjuna en það er gott að hafa í huga að hún virkar bara staðbundið í leginu og hún inniheldur tilbúið gervi hormón, þannig að margar konur finna fyrir aukaverkunum (ég þoldi hana t.d ekki, endaði á að láta fjarlægja hana vegna mikillar vanlíðunar, mígrenið blossaði upp, endalausar blæðingar, orkan hvarf, fékk mikinn bjúg og þrota og þyngdaraukningu) meðan aðrar finna ekki fyrir neinu og finnst frábært að slá þarna nokkrar flugur í einu...getnaðarvörn, vernd fyrir legslímu og minnka/stoppa blæðingar.
Og af því að hún er bara að virka staðbundið (og er gervi hormón) þá fáum við ekkert af þeim góðu eiginleikum sem prógesterón gefur okkur.
Þess vegna eru margar konur sem taka inn micronised prógesterón (t.d Utrogest eða Utrogestan) þrátt fyrir að vera ekki með leg eða vera með hormónalykkjuna. Sérstaklega þær sem glíma við svefnvandamál og andlega vanlíðan sem tengist hormónum.

Persónulega er micronised prógesterón mitt uppáhalds hormón, það breytti líðan minni strax á fyrstu vikunni, man eftir að hafa horft á hendurnar á mér og séð hnúana í fyrsta skipti í einhver ár þar sem ég var að glíma við mikinn þrota og bjúg, en prógesterón er meðal annars vatnslosandi.
En stærsta kraftaverkið var svefninn!!
Ég hafði í þónokkur ár verið að ströggla við að ná að sofna og vaknaði svo um miðja nótt við ekkert og ætlaði aldrei að geta sofnað aftur. En eftir að hafa tekið prógesterónið í nokkur skipti gjör breyttist það, ég fór að sofa í gegnum nóttina, óútskýrði skyndilegi kvíðinn minn hvarf, ég fór aftur að höndla streitu og álag og allt varð einhvern veginn bara “ahhhh”.
Því miður er ein og ein kona sem upplifir ekki það sama og prógesterónið hefur þveröfug áhrif á andlega líðan, þar er ýmislegt sem spilar inní og verður ekki farið yfir í þessum pósti, en margar af þessum konum geta notað prógesterónið með því að setja belgina uppí leggöng eða jafnvel endaþarm (í þessum tilvikum þarf stærri skammta en þegar belgirnir eru gleyptir) og fá þar með legslímuverndina án þess að þurfa að nota progestin (gervi hormónana), en oftast fá þær ekki öll hin áhrifin á svefninn og taugakerfið.
Prógesterón og endómetríósa
Vert er að hafa í huga að konum með sögu um endómetríósu er ráðlagt að nota prógesterón á móti estrógeni þrátt fyrir legnám, oft er erfitt að segja til um hvort að náðst hafi að fjarlægja allar endómetríósufrumurnar og því getur estrógen notkun haldið áfram að triggera sjúkdóminn. Eins geta konur með endó (sem eru með leg) þurft að nota hærri skammta af prógesteróni til að vinna á móti estrógeninu. Og yfirleitt er mælt með því að þær taki það daglega í stað þess að taka pásur.
Er getnaðarvarnarpillan nóg til að vernda legslímuna?
Konum sem þurfa að huga að getnaðarvörnum á sama tíma og þær eru að tækla einkenni breytingaskeiðsins með hormónauppbót og vilja ekki lykkjuna er frekar ráðlagt að taka mini-pilluna sem inniheldur eingöngu progestin, þar sem samsett pilla (sem inniheldur bæði estrógen og progestin) gæti verið að gefa of mikið estrógen með estrógen hormónauppbót. Hins vegar er mini-pillan ekki nóg til þess að vernda legslímuna á móti estrógeninu í hormónauppbótinni, því er ráðlagt að taka micronised prógesterón með.
Getnaðarvarnarpillan er líka oft sögð vera lausn við breytingaskeiðsvandamálum, en það er ekki raunin þar sem hún er að bæla niður okkar eigin framleiðslu meðan hormónauppbótin er að styðja við okkar framleiðslu.
Hér eru nokkrir linkar á rannsóknir, samantektir og greinar:
Margar konur sem eru ekki með leg eða eru að nota hormónalykkjuna sem getnaðarvörn eru að ströggla við að fá lækninn til þess að skilja þörfina fyrir því að koma prógesteróni í kerfið til að fá betri almenna líðan.
Þess vegna ákvað ég að setja hér linka á rannsóknir og greinar frá sérfræðingum varðandi mikilvægi prógesteróns fyrir heildar vellíðan en ekki bara legslímuvernd.
Þú getur annað hvort prentað út, sent lækninum linkana eða bent honum á þessa síðu til að fá hann til að vinna með þér.
Því miður eru sumir læknar ekki tilbúnir að skoða málin út frá öðrum sjónarhornum og þá er því miður eina ráðið að leita til annars læknis - (getur sent mér skilaboð ef þig vantar nöfn á læknum sem ég veit að eru vel að sér í þessu).
Almennt um body/bio identical hormón
Áhrif á svefn
Áhrif á hitakóf og nætursvita
Áhrif á heila




Comments