top of page

Vefverslunin Meyja fór eiginlega alveg óvart af stað þegar ég datt um frábæru sogæðaburstana frá Cecily Braden, sem hafa heldur betur rokið út! En það er nú ekki hægt að hafa bara eina vöru til sölu þannig að fljótlega ákvað ég að bæta við fleiri vörum frá Cecily sem hafa vakið mikla lukku. 

Og svona fyrst maður er komin af stað þá er ég alltaf með opin augu fyrir einhverju skemmtilegu og áhugaverðu til að bæta við, er núna með nokkrar vörur í sigtinu sem munu vonandi koma inn á næstu vikum.

Ég þarf eiginlega að spyrja mömmu hvort ég hafi átt mér draum um að verða búðarkona þegar ég var lítil því mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt hliðar gigg.


Endilega kíktu í heimsókn á Meyja.is
 

ChatGPT Image May 6, 2026, 01_42_49 PM.png
bottom of page