Viðtal við Fréttablaðið

Breytingaskeiðsvænn vinnustaður næsta skref
Halldóra Skúladóttir hefur síðustu ár staðið fyrir vitundarvakningu um breytingaskeiðið, mýturnar um það og afleiðingarnar sem ranggreining á því getur haft í för með sér
Viðtal í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni

Konur ranglega greindar í kulnun
þegar breytingaskeiðið bankar upp á
Halldóra Skúladóttir ráðgjafi hjá Kvennaráð.is um breytingaskeiðið og kulnun. “Hugmyndirnar sem ég hafði var að ég þyrfti að vera orðin fimmtug, hætt á blæðingum og að vera með einhver svakaleg hita- og svitakóf til að geta talist vera á breytingaskeiðinu.”
Viðtal í fréttum stöðvar 2

Segir algengt að konur á breytingaskeiði séu ranglega greindar í kulnun
“Halldóra Skúladóttir hefur lengi verið með fólk í ráðgjöf hjá sér vegna breytingaskeiðs. Hún segir fæsta meðvitaða um að einkenni breytingaskeiðs geti komið mikið fyrr.”
Tók spjall um breytingaskeiðið við morgunhanana í Ísland vaknar á K100

„Byrjar löngu, löngu áður en konur hætta á blæðingum“
„Hugmyndirnar sem ég hafði var að ég þyrfti að vera orðin fimmtug, hætt á blæðingum og að vera með einhver svakaleg hita- og svitakóf til að geta talist vera á breytingaskeiðinu.”
„Þetta bjargar hjónaböndum og þetta bjargar lífum“
„Uppbótarmeðferð fyrir þau hormón sem vantar, þegar breytingaskeiðið gengur í garð hjá konum, getur bjargað bæði mannslífum og hjónaböndum.”
„Þurfum að koma í veg fyrir hormónarifrildi“
„Hitaköst, nætursviti, svefntruflanir, minnistap og heilaþoka – er út af breytingum sem verða í heila, stöðvarnar í heilanum, sem stjórna þessum hlutum, þurfa að fá estrógen til að vera í jafnvægi.”
Í tilefninu af alþjólega degi breytingaskeiðsins október 2021 fór ég í nokkur viðtöl til að vekja athygli á breytingaskeiði kvenna





Podcöst viðtöl
Að finna taktinn - Breytingaskeiðið

Halldóra er mörgum konum kunnug, en hún heldur úti bæði heimasíðunni og instagraminu Kvennaráð þar sem er að finna allskonar fróðleik og reynsla af og um breytingaskeið kvenna. Markmið hennar er að fræða, uppræta fordóma og útrýma tabúinu sem fylgt hefur þessu skeiði í áratugi!


Þú skiptir máli - Æðruleysið - Fyrri hluti

Var gestur í podcastinu Æðruleysið þar sem ég rædi þær aðferðir sem ég er að vinna með til að hjálpa fólki að styðja við og styrkja sjálfið, dáleiðslu, sálmeðferð, NLP og fleira. Í þessu áhugaverða viðtali förum við víða og m.a. tölum um heilan sem dramadrottningu og hvernig gott er að skilja og eiga samtal við hann okkur til gagns og gamans.

Hér er linkur til að hlusta á SPOTIFY

Hér er linkur til að hlusta á SOUNDCLOUD
The Viceman - Fyrir framan barinn í Happy Hour

Var gestur í podcastinu Fyrir framan barinn í HAPPY HOUR þar sem ég fjallaði um hvernig við getum unnið betur í okkur sjálfum til að geta á endanum gefið meira af okkur og veitt betri þjónustu. Að auki ræddum við meðal annars heilsu drykki og framtíð þeirra og samspil heilbrigðs lífsstíls og áfengisneyslu og enduðum á góðum ráðum varðandi markmiðasetningum.

Hér er linkur til að hlusta á SPOTIFY

Þú skiptir máli - Æðruleysið - Seinni hluti

Var aftur boðin í heimsókn í Æðruleysið, að þessu sinni til að tala um breytingarskeið kvenna og málefni þeim tengd. Þær fara um víðan völl í þessu málefni enda af nægu að taka, þær velta fyrir sér hvernig hægt sé að tækla þetta óumflýjanlega tímabil á jákvæðari og betri hátt. Losa um tabúin og skömm sem fylgir þessum aldri kvenna. Þær vitna m.a. í Dr.Lisu Masconi sem rannsakað hefur breytingarskeiðið mikið.


180 með Lindu og Svenna

Við tókum spjall við Halldóru um breytingaskeið kvenna og fáfræðina sem enn má finna varðandi þetta skeið sem hefur þó mikil áhrif á líðan og líf kvenna. Hver eru einkennin og hvernig verða breytinar á líkamsstarfseminni kvenna, hvernig breytast samskiptin við makann á þessu tímabili og hvað þarf makinn að læra nýtt um konuna í lífi sínu.


Hér segi ég frá minni upplifun af kulnun, hvíld og hvernig maður kemst til baka