TLB - sogæðaburstarnir frá Cecily Braden
- Feb 26
- 1 min read

Um burstana
The Lymphatic Brush er sérhannaður bursti sem auðveldar þér að styðja við eðlilega starfsemi sogæðakerfisins, bæði í andliti og á líkamanum. Hannað sérstaklega til að auka flæði sogæðavökva, draga úr bólgum, minnka vökvasöfnun og styðja við náttúrulega hreinsun líkamans.
Burstarnir koma í 2 stærðum og saman veita þeir heildræna örvun fyrir sogæðakerfið.
Hvernig virkar burstinn?
Uppbygging burstans og áferð háranna er hönnuð til að hafa sem mest áhrif á vessaháræðar án þess að erta húðina. Með léttum strokkum fylgir þú leið sogæðanna og hjálpar líkamanum að flytja vökva og úrgang út úr vefjum.
Helstu kostir
Með reglulegri notkun getur sogæðaburstinn hjálpað til við:
Auka sogæðaflæði, sem stuðlar að betra vökvajafnvægi.
Draga úr bólgum í andliti eða líkama.
Minnka bólur, dökka bauga og bólgu undir augum.
Auka ljóma og ferskleika í húðinni.
Styðja við betri líkams- og húðheilsu.
Notkun og ávinningur
Þú þarft enga sérhæfða þekkingu til að byrja. Með léttum strokum fylgir þú leið sogæðanna, frá hálsi og upp andlitið eða niður líkamann. Þetta er einfalt og áhrifarík aðferð sem þú getur sett inn í morgun- og kvöldrútínu.



Comments