top of page

Fyrirlestur um hormónabreytingar kvenna

Lærum að skilja líkama okkar, hormónin og líðanina á nýjan hátt.
Lifandi og hvetjandi fyrirlestur um breytingaskeið kvenna,
ásamt spurningum og spjalli

Create with Us.png

Þegar líkaminn breytir leiknum!

Í þessum fyrirlestri förum við yfir helstu atriðin sem allar konur ættu að þekkja um breytingaskeiðið — hvar sem þú ert á þeirri vegferð: í undirbúningi, á bólakafi eða komin yfir erfiðasta hjallann.

Við skoðum hormónaflöktið, breytingar sem fylgja aldrinum, einkenni, afleiðingar, greiningu og það sem getur hjálpað þér að ná jafnvægi á ný.

Ég mun leggja sérstaka áherslu á tvo þætti sem vekja oft flestar spurningar — annars vegar hormóna og hormónauppbótarmeðferð, og hins vegar andlega líðan.

Mér finnst mikilvægt að skapa rými fyrir spurningar og umræðu, því verða plássin takmörkuð. Þannig er líklegra að hver og ein fái svör við því sem henni liggur á hjarta í tengslum við þetta margbrotna og stundum krefjandi lífsskeið.

🕒 Tímalengd: 1½ klukkustund (getur orðið rúmlega, fer eftir umræðum og spurningum)
💰 Verð: 9.900 kr.
👩‍🦰 Konur á öllum aldri eru velkomnar!

Hlakka til að sjá þig og takast á við þennan lífskafla með þér,
Halldóra

Skráning:
Fylltu út formið hér að neðan til að skrá þig.
Eftir skráningu færðu sendan tölvupóst með greiðsluupplýsingum — athugaðu að pósturinn gæti lent í ruslpósti, svo vertu viss um að kíkja þar líka.

Ef þú færð ekki póst innan skamms, endilega sendu mér línu á halldora@kvennarad.is.

⚠️ Athugið: Plássið þitt er ekki tryggt fyrr en greiðsla hefur borist.

Umsagnir frá námskeiðum og fyrirlestrum

Þetta er frábært námskeið sem opnaði hug minn gagnvart þessu “leyndardómsfulla” skeiði sem allt of lítið er talað um. Halldóra er vel lesin og vandar til verka og er mjög fróð um breytingaskeiðið. Best þótti mér að finna að ég er ekki ein í þessum aðstæðum og hvað lífstíllinn okkar skiptir miklu máli 😊 Ég er bjartsýn á framtíðina!

Breytingaskeiðið á mannamáli og gefur góða mynd á hvað er að gerast og hvað er hægt að gera til að halda í sjálfið og geðheilsuna á þessu “leyniskeiði”. Einföld og sjónræn framsetning á flóknu viðfangsefni. Mæli hiklaust með að gefa sér tíma til að stilla áttavitann og finna sína leið í gegnum ferlið :)

Mæli 100% með þessum fyrirlestri til að fá rétta fræðslu um hormóna og hormónameðferðir. Einnig hvernig við getum sem best undirbúið okkur undir seinni hálfleikinn.

Mæli fullkomnlega með fyrirlestrinum, hann opnar nýjan heim að mögulegum lausum fyrir konur á þessu breitingarskeiði

Svaraði svoooo mörgu, hélt eg væri endanlega orðin klikkuð og kæmist aldrei til baka, en ég eigi von eftir hann, eins hversu mikilvægur svefn og streita er. Beinþynning fyrir fimmtugt, mjög alvarleg og fékk aldrei svör út af hverju, ekki fyrr en 7 árum seinna sem ég heyrði það fyrst hjá þér. Bara sett a lyf 48 ára en engin útskyring út af hverju þó ég marg spyrði doksana.

Þessi fyrirlestur er byggður á persónulegri reynslu konu sem í framhaldinu fékk ástríðu fyrir því að fræða konur um breytingaskeiðið sem ekki er vanþörf á.

Hún er vel lesin, varkár og uppörfandi.

Þegar ég uppgvötaði að ég var komin á þetta umdeilda "leyni" skeið komst ég að því að ég vissi ekki neitt!

Það var svo ótal margt sem kom mér í opna skjöldu og ég var með svo margar spurningar sem enginn virtist hafa svör við og ég vissi ekkert hvert ég gat leitað eftir áreiðanlegum upplýsingum sem byggðust á nútíma þekkingu og rannsóknum, en ekki einhverjum mýtum og aldagömlum "fræðum".

Hvernig get ég vitað að ég hvort ég er byrjuð?

Og hvað á maður að gera þegar þangað er komið?

Hvað get ég gert til að láta mér líða betur?

Af hverju er líkaminn allt í einu hættur að hlýða mér?

Hvernig kemst ég í gegnum þetta án þess að missa vitið?

​Á ég að taka hormóna eða ekki?

Er eitthvað annað en hormónar sem geta hjálpað mér?

Hausinn á mér var fullur af spurningum og engin svör að fá...þannig að ég varð bara að ná mér í þau sjálf! 

Ég fór að tala við konur í kringum mig og komst að því að við erum allar að velta fyrir okkur þessum sömu spurningum...allar jafn týndar og enginn að hjálpa okkur að komast að því hvað snýr upp og niður!

Ég komst líka að því að margir læknar virðast vera mjög illa að sér þegar kemur að þessum málum, annað hvort ekki með áhuga eða hafa alveg gleymt að endurmennta sig á þessu sviði. Það hefur orðið til þess konur hafa átt erfitt með að fá greiningu, rétta meðferð og rétt lyf.

Þannig að síðustu 3 ár hef ég grúskað og grafið mig niður í allt sem tengist breytingaskeiðinu. Hlustað á fyrirlestra, horft á video, lesið rannsóknir, bækur, setið námskeið, farið á ráðstefnur ofl ofl...  Hef haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða bæði fyrir einstaklinga, félagsamtök og fyrirtæki, bæði til að fræða konur en ekki síst vekja athygli á þessu lífsskeiði, fræða samfélagið og útrýma tabúinu!

 

bottom of page