Lausnamiðuð dáleiðsla,
Sálmeðferð &
Jákvæð hugafarsþjálfun
Leyfðu mér að hjálpa þér að fá sem mest út úr lífinu
Stundum koma tímabil í lífinu þar sem við upplifum eins og við séum ekki við stýrið lengur á eigin líðan og hamingju, litlir hlutir verða næstum óyfirstíganlegir, við höfum áhyggjur af ótrúlegustu hlutum, streitan magnast, á sama tíma og við finnum doðann færast yfir og það er alveg sama hvað við reynum við náum ekki að komast aftur í gírinn.
Á endanum fer ástandið að hafa áhrif á svefninn og samböndin við fólkið í kringum okkur, sjálfstraustið hverfur og lífið verður ýmist flatt eða yfirþyrmandi. Okkur finnst við vera týndar, drifkrafturinn og sjálfstraustið farið og sjálfsmyndin farin að molna.
Þetta er lýsing sem ég hef heyrt frá mörgum af þeim konum sem hafa leitað til mín...og þetta er líka mín lýsing, ég þekki hversu erfitt og óþægilegt það er að vera á þessum stað.
Það er hægt að laga ástandið, komast aftur á réttan stað og ná stjórn á lífinu og tilfinningunum. Og því fyrr sem þú leitar þér aðstoðar því betra, það er algjör óþarfi að bíða eftir að lífið verði óbærilegt, ef þér líður ekki eins og þér langar að líða, er um að gera að fá hjálp.
Hér eru nokkur atriði sem ég get hjálpað þér með:
- Ná stjórn á streitu, kvíða og reiði
- Vinna með depurð, þunglyndi, vonleysi
- Kulnun
- Sjálfstraust og sjálfsmynd
- Óútskýranlegur ótti/fóbíur
- Svefnvandamál
- Lífsstíls- og þyngdarstjórnun
- Vinna í vanatengdri hegðun og hugsun
- Framkomu- og frammistöðu kvíði
- Langvarandi verkir og mígreni
Smelltu hér til að lesa nánar um hvernig tíminn fer fram